Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna framtakssjóðsins TF II slhf., sem er í rekstri Íslenskra verðbréfa, og Hreinsitækni ehf. með sérstökum skilyrðum gagnvart sameiginlegum hluthöfum með keppinaut fyrirtækisins, Gámaþjónustunni.

Hreinsitækni er iðnaðarfyrirtæki sem starfar á ýmsum mörkuðum en í samrunaskrá kemur fram að helstu markaðir sem fyrirtækið starfi á séu: markaður fyrir þjónustu við frárennsliskerfi, markaður fyrir hreinsun gatna og gönguleiða, markaður fyrir flutning á úrgangsolíu og markaður fyrir viðgerðir og fóðrun lagna.

Íslensk verðbréf koma ekki að starfsemi á þeim mörkuðum sem Hreinsitækni starfar á og því er hér um svokallaðan samsteypusamruna að ræða að því er segir á vef stofnunarinnar.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að engin samþjöppun á sér stað á skilgreindum mörkuðum málsins í kjölfar samrunans. Hins vegar leiddi rannsóknin í ljós að tilteknir hluthafar Hreinsitækni eiga jafnframt eignarhlut í keppinauti þeirra, Gámaþjónustunni.

Af þeim orsökum hafa samrunaaðilar gengist undir skilyrði sem ætlað er að taka á þeim samkeppnisbrestum sem skapast vegna þessarar aðstöðu. Að undangenginni rannsókn Samkeppniseftirlitsins er það niðurstaðan að umrædd skilyrði leysi þá samkeppnisbresti sem ella hefðu stafað af samrunanum.