Íslensk verðbréf töpuðu 118,4 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 138,3 milljóna króna hagnað árið 2013. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að hagnaður Íslenskra verðbréfa árið 2014 af reglulegri starfsemi hafi verið um 130 milljónir króna samanborið við 160 milljónir árið 2013. Hreinar rekstrartekjur ársins námu 539 m.kr. samanborið við 584 m.kr. árið 2013. Á árinu var hins vegar gjaldfærð 291 milljón króna vegna uppgjörs afleiðusamninga í kjölfar niðurstöðu dómsstóla í janúar 2015, en tap ársins mun skýrast af því.

Eigið fé í árslok 2014 nam 473 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi og eiginfjárhlutfall samstæðunnar sem reiknað er samkvæmt 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki er í árslok 22,6%.

Heildareignir félagsins í stýringu voru þær sömu í lok árs og í upphafi þess og stýrir félagið nú 112 milljörðum króna fyrir einstaklinga, félagasamtök og fagfjárfesta. Alls voru rúmlega 2 þúsund einstaklingar og lögaðilar með fjármuni í eignastýringu og vörslu hjá félaginu.

Breytt eignarhald og nýr framkvæmdastjóri

Í desember á síðasta ári fékk Straumur fjárfestingarbanki hf., ásamt Íslenskri eignastýringu ehf., heimild frá FME til þess að fara með yfir 50% eignarhlut í félaginu. Stjórn félagsins réð Sigþór Jónsson sem framkvæmdastjóra í febrúar 2015. Sigþór er ánægður með rekstur félagsins á árinu 2014.

„Við getum ekki annað en verið nokkuð sátt við þessa niðurstöðu, ekki síst þegar horft er til þeirrar óvissu sem hefur ríkt um eignarhald og framtíðarsýn félagsins,“ segir Sigþór.

Að sögn Sigþórs felst styrkur félagsins í því góða orðspori og þeirri sérstöðu sem félagið hefur skapað sér ásamt þeirri stefnu að vera hlutlaust og sérhæft eignastýringafyrirtæki. „Starfsemi Íslenskra verðbréfa felst eingöngu í því að gæta hagsmuna viðskiptavina sinna en félagið stundar hvorki útlánastarfsemi né fjárfestir fyrir eigin reikning.”