Íslenskt skyr og mjólkurvörur frá MS unnu til fjölda verðlauna á International food contest í Herning í Danmörku í vikunni.

Samtals hlutu mjólkurvörur frá MS 31 verðlaun í keppninni: Tvenn heiðursverðlaun, þrenn gullverðlaun, tíu silfurverðlaun og 16 bronsverðlaun.

Keppt var í sérstökum skyrflokki fjórða árið í röð og hefur íslenskt skyr frá MS sigrað í flokknum frá upphafi. Skyr frá MS vann til sjö verðlauna í flokknum og hlaut Skyr með bláberjum flest stig með einkunnina 14,36 af 15 mögulegum. Íslenska skyrið var sérstaklega sigursælt en það atti til dæmis kappi við skyr frá Arla.

Að sögn Guðnýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra MS, hefur gengi mjólkurvara frá MS í keppninni verið gott frá upphafi:

„Við erum mjög stolt af gengi varanna okkar í keppninni og þá sérstaklega góðu gengi íslenska skyrsins. Íslenska skyrið vekur athygli hvar sem er enda er það einstök íslensk mjólkurvara með 1000 ára sögu,” segir Guðný og bætir við að þetta sé jafnframt mikil viðurkenning fyrir íslenskt fagfólk í mjólkuriðnaði.