Fyrirtækið ISS Ísland hefur tekið upp nýtt nafn eftir umfangsmikla endurskipulagningu og stefnumótun í kjölfar eigendaskipta á síðasta ári segir. Fyrirtækið verður þó áfram með samstarfssamning við alþjóðlega fyrirtækið ISS A/S.

Dagar er nýtt nafn og vísar það til framtíðar og sífellt fjölbreyttari verkefna fyrirtækisins, ekki aðeins í alhliða ræstingum, heldur og veitingum, fasteignaumsjón og fasteignarekstri segir í fréttatilkynningu..

Guðmundur Guðmundsson, forstjóri Daga segist ánægður með nýja nafnið. „Við erum daglega að leysa ýmis konar verkefni fyrir okkar viðskiptavini með bros á vör og hver dagur er tækifæri til að gera betur,“ segir Guðmundur.

Stofnað sem Ræstingamiðstöðin árið 1980

Saga fyrirtækisins nær aftur til ársins 1980 þegar Ræstingarmiðstöðin sf. var stofnuð, en hún varð síðar að ræstingardeild Securitas. Aldamótaárið 2000 keypti alþjóðlega fyrirtækið ISS A/S ræstingardeild Securitas og árið 2017 keyptu svo stjórnendur fyrirtækisins, ásamt hópi innlendra og erlendra fjárfesta, allt hlutafé fyrirtækisins.

„Starfsemi Daga verður sífellt umfangsmeiri og hjá okkur starfa nú liðlega 800 starfsmenn. Við erum með starfsemi á 20 stöðum á landinu, ræstum rúmlega 722.000 fermetra hjá um 600 viðskiptavinum,“ segir Guðmundur.

„Þá erum við með  fjölmarga viðskiptavini í fasteignaumsjón og sjáum um húsumsjón og rekstur fasteigna. Þá hefur veitingasviðið stækkað og dafnað og nú framreiðum við um 50.000 máltíðir á mánuði fyrir fyrirtæki og stofnanir.“

Nýja nafnið var kynnt með viðhöfn fyrir starfsmönnum í gær og kom þar fram að áfram verði byggt á þeim gildum og siðareglum sem fyrirtækið hefur tileinkað sér í alþjóðlegu rekstrarumhverfi og unnið verði áfram af miklum metnaði undir ströngu gæðaeftirliti með hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi segir jafnframt í tilkynningunni.

Dagar verða áfram með samstarfssamning við alþjóðafyrirtækið ISS. Vel skilgreindir verkferlar og sveigjanleiki fari hönd í hönd og þótt sólarhringurinn sé ætíð 24 klukkustundir séu engir tveir dagar eins.