Í fyrsta skipti í sögu Samtaka iðnaðarins er stjórn samtakanna skipuð jafnmörgum konum og körlum. Eyjólfur Árni Rafnsson sem hefur verið varaformaður samtakanna er nýr formaður Samtaka atvinnulífsins og hefur því sagt sig úr stjórninni. Bergþóra Þorkelsdóttir hjá ÍSAM hefur tekið sæti hans í stjórninni og þar með eru fimm konur og fimm karlar nú í stjórn Samtaka iðnaðarins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum iðnaðarins.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, segir þetta ánægjuleg tímamót. „Ég er stolt af því að félagsmenn SI hafi á undanförnum árum hægt og bítandi aukið hlut kvenna í stjórninni án utanaðkomandi þrýstings. Því er ekki að neita að SI eru karllæg samtök þar sem mikill meirihluti félagsmanna eru karlkyns. Í ljósi þess er sérstaklega ánægjulegt að upplifa að hér störfum við öll sem eitt óháð kyni íslenskum iðnaði til framdráttar. Jafnréttismál eru okkur mikilvæg og við gætum að því í öllum okkar störfum. Félagsmenn SI eru mjög meðvitaðir um að við verðum að nýta hæfasta fólkið og allan þann mannafla sem við náum í. Því höfum við að undanförnu verið að hvetja stúlkur til að horfa til iðnnáms og gera iðn að ævistarfi sínu. Í íslenskum iðnfyrirtækjum er urmull spennandi starfa sem henta báðum kynjum.“