Hin fræga og vinsæla veitingahúsakeðja Jamie Olivers sem ber nafnið „Jamie ́s Italian“ mun opna á Hótel Borg í apríl/maí 2017 ef allt fer að óskum við framkvæmdir. Jamie ́s Italian staðirnir hafa dreift sér víða um heiminn, en nú þegar eru 42 staðir í Bretlandi og um 25 á mörkuðum eins og Ástralíu, Dubai og Brasilíu.
Hver og einn staður hefur sitt eigið auðkenni og eigin hönnunarstíl og mun Jamie ́s Italian á Íslandi heiðra Hótel Borg, eitt elsta og virtasta hús borgarinnar í sinni nálgun. Jón Haukur Baldvinsson, einn af forsvarsmönnum Jamie ́s Italian á íslandi segir m.a. „Ímynd Íslands sem matvælaland með allri sinni fegurð og hreinleika í bland við mikla grósku á veitingamarkaðnum á vel við ímynd Jamie Oliver sem er mikill talsmaður sjálfbærnar matvælaframleiðslu sem og upprunarvottunar afurða sem hann gerir gríðarlegar miklar kröfur til og er engu hliðrar til í þeim efnum.“
Jamie´s Italian byrjaði sem samstarfsverkefni á milli Jamie Oliver og lærimeistara hans, Gennero Contaldo. Sú hugmynd var sköpuð í kringum „Italian table“ – sem er einfaldur matur sem öll fjölskyldan getur notið saman. Jamie´s Italian Reykjavik mun bera fram klassíska og einfalda ítalska rétti og verður fjölskyldustaður.