Vinnslu á loðnu úr Bjarna Ólafssyni AK í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar lauk seinni partinn í gær en hluti af afla hans fór í frystingu á Japansmarkað. Í gær dúraði á loðnumiðunum fyrir sunnan land og fengu mörg skipanna góðan afla. Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.480 tonn og verður hluti aflans frystur á Japan. Börkur NK kemur síðan í kjölfar Vilhelms með 1.430 tonn og er einnig ætlunin að afli hans fari í Japansfrystingu.

Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, segir í viðtali í fréttinni að þeir hafi fengið aflann í Skarðsfjörunni í fimm köstum. Hrognafylling loðnunnar sé 16-17% og hún ætti því að henta vel til Japansfrystingar. Telur Hjörvar að einhver möguleiki verði til veiða á morgun en annars sé veðurútlit slæmt við suðurströndina allavega fram á sunnudag.

Polar Amaroq skipaði frystri loðnu um borð í flutningaskip í Norðfjarðarhöfn í gær en hélt síðan til veiða norður fyrir land þar sem norski loðnuflotinn hefur haldið sig. Heimasíðan ræddi við Geir Zoëga skipstjóra á Polar Amaroq í morgun en þá voru þeir Polarmenn með fyrsta kast á Skjálfanda.

„Við fundum loðnu strax og við komum hér og erum að draga núna. Það er eitthvað í þessu hjá okkur. Loðnan stendur djúpt en Norðmennirnir segja að hún komi upp á kvöldin. Mér líst bara vel á þetta en það var veðurútlitið sem gerði það að verkum að við fórum hingað norður fyrir land. Hér verður blíða á morgun og eftir morgundaginn hverfa norsku skipin á braut. Þá verðum við einir hér. Hrognafyllingin í loðnunni hérna er um 15% og það hentar okkur vel,“ sagði Geir.

Eins og fram kemur hjá Geir er einungis einn dagur eftir af þeim tíma sem Norðmenn mega stunda loðnuveiðar við landið. Eru allar líkur á því að þeir muni nánast ljúka við að veiða þann kvóta sem þeir hafa til ráðstöfunar á þeim tíma, að því er segir í fréttinni.