Jóhann Gísli Jóhannesson hefur verið ráðinn til rekstrarfélagsins GAMMA.

Þar mun hann sinna hlutabréfastýringu auk verkefna tengdra fyrirtækjaskuldabréfum.

Frá 2013 hefur Jóhann starfað hjá Íslandssjóðum sem sjóðsstjóri, auk þess sem hann hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands.

Hann er með M.Sc. gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands.