Jóhannes Þór Skúlason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Jóhannes Þór var valinn úr hópi 41 umsækjanda um starfið.

Jóhannes Þór er með BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands auk þess að vera með kennsluréttindi frá sama skóla. Undanfarið hefur hann starfað sem aðstoðarmaður formanns Miðflokksins ásamt því að hafa umtalsverða reynslu úr stjórnmálum og stjórnsýslu á umliðnum árum, m.a. sem aðstoðarmaður forsætisráðherra.

Þá hefur Jóhannes Þór starfað sem grunnskólakennari og almannatengslaráðgjafi ásamt því að hafa verið talsmaður InDefence hópsins. Jóhannes Þór er kvæntur Æsu Strand Viðarsdóttur, bókasafns- og upplýsingafræðingi við Listaháskóla Íslands, og eiga þau saman tvö börn á unglingsaldri.

Reynsla af hagsmunagæslu brýnna málefna

„Samtök ferðaþjónustunnar bjóða Jóhannes Þór velkominn til starfa. Það er akkur fyrir okkur að fá jafn öflugan einstakling og Jóhannes Þór til að leiða það kraftmikla starf sem unnið er á skrifstofu SAF og á vettvangi samtakanna,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.

„Jóhannes Þór býr yfir mikilli reynslu í því að gæta hagsmuna brýnna málefna og væntum við mikils af hans störfum fyrir þá mikilvægu atvinnugrein sem ferðaþjónustan er fyrir íslenskt samfélag.“

Jóhannes Þór Skúlason segist hlakka til að takast á við nýjar og spennandi áskoranir. „Ég hef fylgst með starfsemi SAF á undanförnum árum og veit að samtökin eru öflugur málsvari fyrir atvinnugreinina“ segir Jóhannes Þór.

„Á næstu misserum liggur fyrir að takast þarf á við flókin úrlausnarefni sem snerta ferðaþjónustu á Íslandi. Ég er óhræddur við að takast á við krefjandi áskoranir og geng jákvæður og bjartsýnn til verka á vettvangi samtakanna.“ Jóhannes Þór hefur störf hjá SAF 10. júní næstkomandi. Hann tekur við af Helgu Árnadóttur sem verið hefur framkvæmdastjóri samtakanna frá árinu 2013.