Kosið var í stjórn Haga á hluthafafundi sem fram fór í morgun. Jón Ásgeir Jóhannesson sem gaf kost á sér í stjórn náði ekki kjöri. Allir þeir sem tilnefningarnefnd hafði tilnefnt náðu kjöri.
Erna Gísladóttir var í kjölfarið kjörin formaður stjórnar og Davíð Harðarsson var kjörinn varaformaður.
Eftirfarandi aðilar náðu kjöri í stjórn:
- Davíð Harðarson
- Eiríkur S. Jóhannsson
- Erna Gísladóttir
- Katrín Olga Jóhannesdóttir
- Stefán Árni Auðólfsson