Jón Finnbogason er hættur sem forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni. Anna Kristjánsdóttir, sem hefur verið sjóðstjóri skuldabréfa hjá Stefni, mun taka við starfi Jóns. Vísir greinir frá.

Jón hefur gegnt starfi forstöðumanns skuldabréfa frá árinu 2013. Jón, sem gegndi jafnframt stöðu staðgengils framkvæmdastjóra Stefnis, starfaði áður meðal annars sem aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka. Þar áður var hann forstjóri Byrs.

Stefnir er dótturfélag Arion banka og stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með um 400 milljarða króna í eignastýringu.