Jón Gnarr, dagskrárstjóri 365 miðla og fyrrverandi borgarstjóri og grínisti, segir í viðtali við Kjarnann að hann ætli að hugsa málið yfir vikuna um hvort hann bjóði sig fram til forseta fyrir komandi kosningar.

Í viðtali Jóns við Kjarnann segir hann að tilkynningin muni koma fram á einum miðla 365, en þangað til ætli hann að liggja undir feld.

Þá hefur Jón sýnt tvískiptar skoðanir á málinu. Í pistli í Fréttablaðinu sagðist hann ekki hafa áhuga á framboði, en svo á Jólavöku RÚV nýverið sagði hann embættið hljóma eins og skemmtilegt verkefni.