Jón Viðar Stefánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs ÍSAM.  Jón Viðar hefur mikla reynslu á sviði sölu- og markaðsmála, sem og af rekstri, en hann hefur áður starfað sem markaðsstjóri Coca-Cola hjá Vífilfelli, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar og framkvæmdastjóri Áberandi ehf.

Jón Viðar hefur þegar hafið störf hjá ÍSAM og segist vera afar spenntur að taka við nýju starfi.Jón Viðar er með B.Sc. gráðu í markaðsfræðum frá Háskólanum í Reykjavík. Eiginkona hans er Auður Kristín Þorgeirsdóttir og eiga þau fjögur börn.  Jón Viðar er Vestmannaeyingur og ötull stuðningsmaður ÍBV.