Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, stígur til hliðar svo ný forysta geti sameinað „á nýjan leik þann styrk sem felst í víðtækri samstöðu innan Sjómannafélags Íslands“. Segir hann félagið hafa verið í varnarbaráttu sem hafi þó farið að einu og öllu að lögum félagsins, en eins og Fiskifréttir hafa sagt frá komu fram veik félagið, Heiðveigu Maríu Einarsdóttur, einum frambjóðanda til forystu úr félaginu.

„Áhlaupi sem ætlað var að yfirtaka Sjómannafélag Íslands hefur verið hrundið.“ segir í upphafi yfirlýsingar Jónasar, þar sem hann segir að „áhlaupslið“ hafi borið félagið þungum sökum, og persóna hans hafi verið sérstaklega sett fram í sviðsljósið, þar sem snöggur blettur á honum hafi verið nýttur út í ystu æsar.

Hér má lesa yfirlýsingu Jónasar í heild sinni:

Þar hafi eiginkona hans og jafnvel börn hafi verið dregin inn í upprifjun fjölmiðla, frammistaða barna hans í atvinnulífinu gerð tortryggileg allt þó hann hafi strax síðastliðið sumar gefið það út að hann myndi ekki bjóða sig fram aftur.

Í þeirri varnarbaráttu var í einu og öllu farið að lögum félagsins. Eflaust eru skiptar skoðanir um einhver ákvæði í lögunum. Til stendur að skipa sérstaka nefnd til þess að endurskoða lögin með heildstæðum hætti og leggja tillögur sínar fyrir aðalfund árið 2019.

Í atlögunni sem gerð var að félaginu var það borið þungum sökum um vinnubrögð. Flestar þeirra ásakana voru beinlínis rangar. Þeim var slegið hverri á fætur annarri upp í þeim fjölmiðlum sem mest lögðu sig fram í umfjöllun um deilur innan félagsins. Minni áhugi hefur verið á að leiðrétta þær rangfærslur jafnóðum og sýnt var fram á upplognar sakir. Þannig hefur áhlaupsliðinu tekist að sá frækornum efasemda um heiðarleika og heilbrigði í rekstri  Sjómannafélags Íslands.

Í þeim efnum hefur mín persóna verið sett sérstaklega í sviðsljósið. Minnst af þeirri umfjöllun hefur snúist um gagnrýni á störf mín fyrir félagið heldur annars vegar um launakostnað félagsins vegna mín, sem sagður var um þrefalt hærri en raun er á, og hins vegar upprifjun á sorglegum atburðum í einkalífi mínu. Svo langt hefur verið gengið að flétta með grímulausum hætti eiginkonu minni og jafnvel börnum inn í þessa upprifjun fjölmiðlanna. Frammistaða uppkominna barna minna í atvinnulífinu hefur jafnvel verið gerð tortryggileg. Áhlaupshópurinn fann í mér snöggan blett á félaginu og nýtti sér hann út í ystu æsar. Það gerði hann þrátt fyrir að ég hafi strax síðastliðið sumar gefið út yfirlýsingu um að ég myndi ekki bjóða mig fram til áframhaldandi formennsku í félaginu.

Það verður verkefni nýrrar forystu að sameina á nýjan leik þann styrk sem felst í víðtækri samstöðu innan Sjómannafélags Íslands og lagt hefur grunn að þeim mikla árangri sem náðst hefur á undanförnum árum. Sú vinna þolir enga bið. Til þess að flýta fyrir því ferli hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem formaður félagsins. Ég óska þeim sem við keflinu taka farsældar í gríðarlega mikilvægum störfum sínum á næstu mánuðum. Ég mun að sjálfsögðu eins og svo fjölmargir aðrir félagsmenn leggja þar hönd á plóg verði eftir því óskað.

Ég tek þessa ákvörðun með eigin hag, fjölskyldu minnar og félagsins að leiðarljósi og vona að hún muni gera sáttaferlið innan Sjómannafélags Íslands auðveldara en ella.