Heimili í Danmörku þarf að bera rúmlega þrefalt meiri kostnað fyrir notkun kalda vatnsins á ári hverju en á Íslandi. Ódýrast er að nota kalt vatn á Íslandi af Norðurlöndunum.

Þetta kemur fram í árlegri samantekt Samorku um kaldavatnsnotkun þar sem stuðst er við nýjar tölur frá stærstu veitufyrirtækjum Norðurlandanna.

Í Danmörku er kostnaður á ári tæplega 78 þúsund krónur sem er langmesti kostnaðurinn á Norðurlöndunum. Skattar og gjöld hækka þessa tölu mikið, en jafnvel án þeirra kostar kalda vatnið mest þar. Finnsk heimili greiða um 45 þúsund á hverju ári og svipað er að segja um heimili í Noregi, sem greiða um 42 þúsund. Minnst er rukkað fyrir þessa þjónustu í Svíþjóð og á Íslandi. Í Svíþjóð má búast við að greiða rúmlega 25 þúsund krónur árlega fyrir notkun á köldu vatni en á Íslandi 24 þúsund, eða tvö þúsund krónur á mánuði.

Íslendingar eru ein vatnsríkasta þjóð heims og landsmenn nota kalda og heilnæmt vatnið óspart. Meðalnotkun á heimili er um 500 lítrar á sólarhring sem er það mesta sem gerist í Evrópu. Kalt vatn er ekki selt um rennslismæla hérlendis eins og víðast hvar annars staðar, heldur er kostnaður áætlaður út frá fasteignamati. Þrátt fyrir mikinn vatnsauð og lítinn kostnað hvetja veitufyrirtæki til þess að almenningur beri virðingu fyrir auðlindinni og noti vatnið skynsamlega, til að halda viðhaldskostnaði í skefjum.