Rækjuverksmiðjan Kampi ehf. á Ísafirði skrifaði nýverið undir samning um kaup á karakerfi frá Skaginn 3X. Ávinningur kerfisins eru miklir þar sem það eykur afköst og sjálfvirkni verksmiðjunnar og notkun lyftara minnkar því til muna eins sem meðhöndlun á hráefni og körum verður betri.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækjunum. Þar segir:

Rækjuverksmiðjum hérlendis hefur fækkað á undanförnum árum og eru nú aðeins fjórar rækjuverksmiðjur hérlendis í fullum rekstri. Það er mikil breyting frá því sem áður var þegar rækjuveiði og rækjuvinnsla var mun stærri þáttur í sjávarútveginum á Íslandi. Það er því virkilega ánægjulegt að Kampi ehf. skuli fara í fjárfestingu sem þessa sem eykur öryggi og sjálfvirkni í vinnslunni til muna.

„Reksturinn hjá Kampa ehf. hefur gengið vel undanfarna mánuði og góður stígandi hefur verið í vinnslunni. Það var því kjörið tækifæri að fara út í fjárfestingar á búnaði í rækjuverksmiðjunni. Við erum að auka afköst og sjálfvirkni hjá okkur og eru kaup á hágæða karakerfi frá Skaginn 3x liður í því ferli,“ segir Albert Haraldsson rekstrarstjóri Kampa ehf. á Ísafirði.

„Fyrirtæki í sjávarútvegi hérlendis eru ávallt að leita leiða til þess að ná fram meiri afköstum, auka sjálfvirkni og bæta meðhöndlun afurða og þar erum við hjá Skaginn 3X fremst í flokki,“ segir Freysteinn Nonni Mánason, svæðissölustjóri hjá Skaginn 3X.

Áætlað er að búnaðurinn verði kominn í fulla notkun í febrúar 2019.