Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hafði ekkert samráð við þingflokk Framsóknarflokksins áður en hann lýsti því yfir að hann væri reiðubúinn að rjúfa þing og boða til kosninga ef þingflokkur Sjálfstæðisflokksins myndi ekki styðja ríkisstjórnina.

Þetta kom fram í viðtali við Karl Garðarsson í hádegisfréttum RÚV. Karl var augljóslega ósáttur og sagði að viðbrögð Sigmundar Davíðs í málinu kæmu honum á óvart. Karl bætti við „hann hefði kannski átt að segja þingflokknum þetta fyrst.“