Frágangur og uppgjör kaupa Hampiðjunnar á 73,4% hlut í færeyska félaginu P/f Von mun frestast um ótilgreindan tíma vegna þess að enn er beðið eftir áliti samkeppnisyfirvalda. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Hampiðjunni.

Þann 15. mars síðastliðinn tilkynnti Hampiðjan um að félagið hefði gengið frá kaupum á 73,381% eignarhlut í færeyska fyrirtækinu P/f Von. Í tilkynningunni segir að áætlað hafi verið að endanlegur frágangur og uppgjör vegna kaupanna myndi eiga sér stað eigi síðar en 22. apríl 2016. Nú liggur fyrir að sú dagsetning mun frestast um ótilgreindan tíma þar sem fyrirvörum vegna kaupanna sem lúta að samþykki samkeppnisyfirvalda hefur ekki verið aflétt að fullu.

Segir í tilkynningunni að samkeppniseftirlit Færeyja hafi samþykkt viðskiptin en beðið sé eftir áliti samkeppnisyfirvalda á Íslandi og í Litháen. Einnig sé vinna við áreiðanleikakannanir vegna kaupanna enn í gangi. Félagið hefur jafnframt gengið frá skuldbindandi kauptilboði á 22,321% hlut af minnihlutaeigendum, sem háð er sömu fyrirvörum.