Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) komst í dag að þeirri niðurstöðu að kaup íslenskra stjórnvalda á flugmiðum á grundvelli rammasamninga við Icelandair fælu ekki í sér ríkisaðstoð í skilningi samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES). ESA hefur haft málið til athugunar síðan forsvarsmenn Iceland Express kvörtuðu vegna málsins síðla árs 2012.

Fram kemur í umfjöllun ESA að stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins keyptu á grundvelli rammasamninga flugmiða af Icelandair þegar þess var þörf. Flugmiðarnir voru keyptir á sömu kjörum og með sömu skilmálum og buðust öðrum stórum viðskiptavininum Icelandair. Ekki verði annað séð en að rammasamningar íslenska ríkisins við Icelandair hafi verið eðlilegir viðskiptagjörningur á markaðsforsendum sem fólu ekki í sér ívilnun til handa Icelandair. Þar af leiðandi fólu umræddir samningar ekki í sér ríkisaðstoð.

ESA komst einnig að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til að rannsaka meinta mismunun Flugmálastjórnar Íslands við afgreiðsla á flugréttindum enda hefði Samgönguráðuneytið á sínum tíma fellt ákvörðun Flugmálastjórnar úr gildi og Samkeppniseftirlitð hefði auk þess tekið á málinu með fullnægjandi hætti.