Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að nýta heimild til kaupa á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans 21. mars 2018. Samkvæmt endurkaupaáætluninni munu kaupin nema að hámarki 72,5 milljónum hluta eða sem nemur 0,3% af útgefnu hlutafé. Landsbankinn hefur þrisvar áður gefið hluthöfum kost á að selja hluti sína í bankanum, síðast í febrúar 2017. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum

Býðst bankinn til að kaupa hluti af hluthöfum á endurkaupatímabili sem stendur frá og með 10. desember 2018 til og með 20. desember 2018.

Samkvæmt árshlutauppgjöri Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2018 er eigið fé sem tilheyrir hluthöfum bankans 235.892 milljónir króna og útistandandi hlutir 23.640 milljónir. Í samræmi við framangreint býðst Landsbankinn því til að kaupa hvern hlut á genginu 9,9787 á endurkaupatímabilinu.

Heildarfjöldi hluta í bankanum er 24.000 milljón hlutir. Fjöldi hluthafa í bankanum er 931. Ríkissjóður á um 23.567 milljón hluti eða um 98,2% af útgefnum hlutum. Bankinn á um 360,5 milljónir eigin hluti eða um 1,5% af útgefnu hlutafé. Aðrir hluthafar en ríkissjóður og bankinn eiga um 72,5 milljónir hluta eða um 0,3% af útgefnu hlutafé.