Útgerðarfélagið HB Grandi hefur fest kaup á aflahlutdeildum í bolfiski sem svara til tæplega 1600 þorskígildistonna á kr. 3.950 milljónir af Hafnarnes VER, Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins á vefsíðu kauphallarinnar.

Ríflega helmingur aflaheimildanna er í þorski og er félagið með þessum kaupum að tryggja afla til vinnslu á Vopnafirði án þess að skerða afla til annarra starfstöðva félagsins.

Aflahlutdeild HB Granda fer því úr um 43.800 þorskígistonnum í  um 45.400 þorskígildistonn eða úr 10,7% af heildaraflahlutdeild í 11,1%. Gengi bréfa í útgerðarfélaginu lækkuðu um 1,72% í dag og fæst hver hlutur nú á 31,45 krónur.