Útgáfufélagið Frjáls fjölmiðlun hefur keypt rekstur fjölmargra fjölmiðla af Pressunni og dótturfélögum hennar. Kaupsamningur þess efnis var undirritaður í vikunni og fyrirvörum í honum aflétt sl. miðvikudag. Kaupverðið er vel á sjötta hundrað milljónir króna og er greitt með reiðufé og yfirtöku skulda að því er segir í fréttatilkynningu frá Birni Inga Hrafnssyni, útgefanda Pressunnar.

Í viðskiptunum felst að Frjáls Fjölmiðlun, sem er að fullu í eigu Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns og fv. forstjóra Norðurljósa, tekur yfir útgáfu DV, dv.is, Pressunnar, Eyjunnar, Bleikt, Birtu, doktor.is og 433.is auk sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN.
Allt starfsfólk viðkomandi fjölmiðla heldur störfum sínum eftir viðskiptin, utan að Björn Ingi Hrafnsson, sem verið hefur útgefandi fjölmiðlanna, hverfur til annarra starfa.

„Ég er gríðarlega stoltur af þessum viðskiptum og finn fyrir miklum létti,“ segir Björn Ingi. Með þessari sölu tekst að greiða niður skuldir, að tryggja rekstur mikilvægra fjölmiðla í okkar samfélagi og tryggja hagsmuni kröfuhafa. Það höfum við gert og ég hygg að umfang þessara viðskipta komi ýmsum á óvart í ljósi þess að ýmsir hafa reynt að tala virði þessara fjölmiðla niður á opinberum vettvangi.“

Þarf á fríi að halda

Sjálfur ætlar hann fyrst um sinn að taka sér svolítið frí. „Ég þarf á því að halda. Það er mikil ábyrgð að stýra stóru fjölmiðlafyrirtæki og ég er ákaflega þakklátur frábæru starfsfólki samstæðunnar fyrir framúrskarandi störf við erfiðar aðstæður. Það tekur á að heyja varnarbaráttu og ég held að framundan séu mikil sóknarfæri. Við njótum þess að vera í stórsókn í lestri með helgarblað DV, auk þess sem vefmiðlarnir okkar eru gríðarlega mikið lesnir.“

Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður og eigandi Frjálsrar fjölmiðlunar, segir mikilvægt að Ísland eigi öfluga fjölmiðla. Hann hefur mikla reynslu af fjölmiðlarekstri og stýrði um skeið stærsta einkarekna fjölmiðlafyrirtæki landsins, Norðurljósum. „Ég hef fylgst með þessum rekstri og veit að þarna vinnur ákaflega hæft fólk. Framundan er spennandi tími, þar sem ég vonast til að sjá þessa fjölmiðla vaxa og dafna.“