Kaupmáttur launa í júní 2017 er 144,4 stig og hækkaði um 1% frá maímánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala launa hækkað um 5,6% að því er kemur fram í frétt Hagstofu Íslands . Vísitala kaupmáttar launa byggir á launavísitölu og vísitölu neysluverðs.

Launavísitala í júní 2017 er 623,8 stig og hækkaði um 1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,3%. Launavísitala er verðvísitala sem byggir á gögnum úr launarannsókn Hagstofu Íslands og sýnir breytingar á verði vinnustundar fyrir fasta samsetningu vinnutíma.