Kaupmáttur launa í febrúar 2017 er 138,9 stig og lækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,5%. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands .

Launavísitalan í febrúar 2017 mældist 595,1 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði. Hún hefur því hækkað um 5,5% síðastliðið ár.