Undirritaður hefur verið kaupsamningur um kaup Regins á dótturfélögum Fast-1 slhf., með hefðbundnum fyrirvörum um samþykkt Samkeppniseftirlitsins og hluthafa Fast-1. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá var upphaflegt kaupverð áætlað 23,2 milljarðar, en það hefur nú verið lækkað í 22,7 milljarða að undangenginni áreiðanleikakönnun.
Félögin eiga fasteignir í austurborg Reykjavíkur, þar með talið Höfðatorgsturninn við Katrínartún, en meðal stærstu leigutaka þeirra eru Reykjavíkurborg, Fjársýsla ríkisins, Reiknistofa bankanna og Fjármálaeftirlitið en um 57% tekna koma frá opinberum aðilum.
Eignast tæplea 13% í Reginn
Félagið er að mestu í eigu lífeyrissjóða, tryggingafélaga og annarra fagfjárfesta, en meðal stærstu eigenda þess eru Gildi-lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður verzlunarmanna, sem hver eiga tæplega fimmtungshlut.
Festa lífeyrissjóður er með tæplega 10% hlut og Almenni lífeyrissjóðurinn með tæplega 7% hlut. Miðað við upphaflega áætlað kaupverð verður hlutur eigenda Fast-1 í Reginn tæplega 13% alls hlutafé í Reginn. Auk þess greiðir félagið hluta kaupverðs með skuldabréfaútgáfu.
Dótturfélögin eru tvö, HTO ehf. og Fast-2 ehf. Fjárfestingareignir HTO eru Borgartún 8-16 og Höfðatorgsturninn við Katrínartún 2, en fjárfestingareignir FAST-2 eru Skúlagata 21, Skútuvogur 1 og Vegmúli 3. Viðskiptablaðið greindi frá sölunni á Höfðatorgsturningum til félagsins á sínum tíma, en árið 2014 var kaupverðið á þeirri einu fasteign 4,6 milljarðar.
Hér má sjá eldri fréttir af Fast-1 fasteignafélaginu:
- 20. nóvember 2017 - Reginn kaupir Höfðatorgsturninn
- 8. september 2017 - N1 kaupir til baka vöruhús
- 24. mars 2017 - Fast-1 hagnast um 420 milljónir
- 30. ágúst 2016 - Fast-1 hagnast um 138 milljónir
- 21. mars 2016 - Afkoma Fast-1 tvöfaldast milli ára
- 27. ágúst 2015 - Fast-1 tvöfaldaði hagnaðinn
- 19. mars 2015 - Fast-1 hagnast um 493 milljónir
- 23. ágúst 2014 - Nýr framkvæmdastjóri Fast-1
- 26. júní 2014 - Höfðatorg keypt á 4,6 milljarða króna
- 24. júní 2014 - Fast-1 tapaði 114 milljónum
- 8. nóvember 2013 - FME stöðvar viðskipti með skuldabréfaflokk
- 20. september 2013 - Níu buðu í Höfðatorg
- 20. september 2013 - Sjóður í rekstri VÍB kaupir Höfðatorg af Íslandsbanka
- 23. apríl 2013 - Fasteignafélag lífeyrissjóða tapaði 36,5 milljónum
- 25. janúr 2013 - Sjóður VÍB kaupir fasteign og leigir N1
- 5. nóvember 2012 - Leggja milljarða í íbúðarhúsnæði
- 21. október 2012 - Gera út á fasteignamarkaðinn
- 16. júní 2012 - Fjárfesta í fasteignum
-
30. maí 2012 -
Nýtt fasteignafélag lítur dagsins ljós