Vestfirska fyrirtækið Kerecis tekur nú þátt rannsóknarmálþingi varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna (MHSRS). Á ráðstefnunni kynnti fyrirtækið niðurstöður tveggja stórra rannsókna sem fjármagnaðar eru af bandaríska hernum. Að sögn forstjóra Kerecis, Guðmundi Fertram Sigurjónssyni, vöktu niðurstöðurnar mikla athygli Vestanhafs. Hægt er að lesa fréttatilkynningu um málið hér.

Málþingið er samkomustaður herlækna og hjúkrunarfræðinga, vísindamanna varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, háskólafólks og einkageirans til að skiptast á upplýsingum um rannsóknir og þróun á heilbrigðislausnum fyrir hermenn.

Kynna niðurstöður tveggja rannsókna

Í fyrsta lagi kynnti fyrirtækið niðurstöður brunasárarannsóknar þar sem að þau prófa vöruna sína á brunasárum sem ná niður í hold. „Niðurstöðurnar voru afskaplega jákvæðar og færa okkur nær því að selja bandaríska hernum sáraroð til notkunar á átakasvæðum. Steve Jeffery ofursti og brunalæknir í breska hernum kynnti niðurstöðurnar,“ segir Guðmundur.

Í öðru lagi kynnti Kerecis niðurstöður heilabastrannsóknar. Heilabast er þunn himna á milli heilans og höfuðkúpunnar. Höfuðáverkar er algengasta dánarorsökin í hernaðarátökum (sár næst algengasta) og við alvarlega höfuðáverka rofnar heilabastið. Sáraroðið okkar getur bætt möguleika lækna á að loka alvarlegum höfuðmeiðslum og þar með aukið lífslíkur slasaðra. Ingvar Ólafsson taugaskurðlæknir frá Landspítalanum kynnti niðurstöðurnar.