Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 139 þúsund í nýliðnum janúar eða um 8.500 færri en í janúar árið 2018, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkun milli ára nemur 5,8%.

Bretar og Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í janúar eða 46,2% brottfara. Í báðum hópum var um fækkun að ræða á milli ára. Bretum fækkaði um 8,6% og Bandaríkjamönnum um 11,9%.

Kínverjum fjölgaði um nálega fimmtung

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í janúar ár tilkomnar vegna Breta og Bandaríkjamanna, sem fyrr segir. Bretar voru fjölmennastir, um 34.700 talsins, og bottfarir Bandaríkjamanna komu þar á eftir en þær mældust um 29.500. Samtals voru brottfarir þessara tveggja hópa 46,2% af heildarbrottförum.

Kínverjar voru þriðju fjölmennastir í janúar síðastliðnum en brottfarir þeirra voru 7.700 talsins, eða 4,8% af heild, og fjölgaði þeim um 18,4% milli ára. Brottfarir Þjóðverja voru í fjórða sæti, um 6.600 talsins, eða 4,8% af heild, og fjölgaði þeim jafnframt eða um 7,7% milli ára.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Frakka, sem voru 3,9% af heild; Pólverja, 3,8% af heild; Ástrala og Ný-Sjálendinga, 2,6% af heild; Kanadamanna, 2,5% af heild; Spánverja, 2,1% af heild og Dana 2,0% af heild.