Kjartan Hansson hefur verið ráðinn vöruþróunar- og tæknistjóri hjá Netgíró.

Í starfinu felst að leiða hönnun og vinna að þróun á stafrænum greiðslumöguleikum.

Kjartan starfaði síðast hjá Meniga, fyrst sem vörustjóri en síðan sem deildarstjóri í innleiðingarráðgjöf.

Þar áður starfaði hann sem deildarstjóri netviðskipta hjá Íslandsbanka.