Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,2% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 4.-14. janúar. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hélst nær óbreytt frá síðustu mælingu sem lauk 11. desember.

Samfylkingin mældist með 15,0% fylgi, sem er tæplega tveimur prósentustigum minna en flokkurinn mældist með í síðustu könnun. Þá minnkaði fylgi Vinstri grænna um rúmlega eitt og hálft prósentustig, fylgi Miðflokksins jókst um eitt prósentustig og fylgi Flokks fólksins jókst um tvö og hálft prósentustig frá síðustu mælingum.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst lítillega en 41,1% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 40,3% í síðustu mælingu.

Fylgi flokkanna nú, í síðustu könnun og loks í kosningunum:

  • Fylgi Sjálfsstæðisflokksins mældist nú 22,2% og mældist 22,1% í síðustu könnun. Flokkurinn fékk 25,3% og 16 þingmenn í kosningunum 2017.
  • Fylgi Samfylkingar mældist nú 15,0% og mældist 16,9% í síðustu könnun. Flokkurinn fékk 12,1% og 7 þingmenn í kosningungunum 2017.
  • Fylgi Vinstri grænna mælist nú 11,3%, og mældist 12,9% í síðustu könnun. Flokkurinn fékk 16,9% og 11 þingmenn í kosningunum 2017.
  • Fylgi Pírata mældist nú 13,8% og mældist 14,4% í síðustu könnun. Flokkurinn fékk 9,2% og 6 þingmenn í kosningunum 2017.
  • Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 11,7% og mældist 12,5% í síðustu könnun. Flokkurinn fékk 10,7% og 8 þingmenn í kosningunum 2017.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,8% og mældist 8,5% í síðustu könnun. Flokkurinn fékk 6,7% og 4 þingmenn í kosningunum 2017.
  • Fylgi Miðflokks mældist nú 6,9% og mældist 5,9% í síðustu könnun. Flokkurinn fékk 10,9% og 7 þingmenn í kosningunum 2017.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,7% og mældist 4,2% í síðustu könnun. Flokkurinn fékk  6,9% og 4 þingmenn í kosningunum 2017.
  • Fylgi annarra flokka mældist 4,6% samanlagt.