Síldarvinnslan hf. greinir frá því að Beitir og Börkur hafi lokið veiðum í ár. Að undanförnu hafi þau verið að kolmunnaveiðum í færeysku lögsögunni ásamt Bjarna Ólafssyni AK sem þegar er hættur veiðum.

Gert er ráð fyrir að skipin komi til heimahafnar síðdegis á morgun eða annað kvöld. Aflinn um borð í Beiti er um 950 tonn og um 200 tonn um borð í Berki.

Lítið hefur verið af fiski í færeysku lögsögunni að undanförnu, að sögn Hjörvars Hjálmarssonar skipstjóra á Berki..

„Við erum einungis búnir að taka tvö hol og aflinn er um 200 tonn. Þetta hefur verið hræðilega lélegt síðustu dagana, það hafa verið um 5-6 tonn á tímann. Nú er útlit fyrir brælu fram á sunnudag og síðan á að koma bræla á ný á mánudag þannig að það er skynsamlegast að koma sér heim í jólafrí. Við komum við í Færeyjum á heimleiðinni þannig að strákarnir eiga kost á að kaupa jólagjafir handa konunum þar," segir Hjörvar á fréttavef Síldarvinnslunnar.