Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar nam 660 milljónum króna á síðasta ári, en þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi bæjarins. Fjárhagsáætlun bæjarins gerði ráð fyrir afgangi upp á 677 milljónir króna.

Tekjur sveitarfélagsins námu 22,7 milljörðum en gert var ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 22 milljörðum króna. Eigið fé nam í árslok 2014 ríflega 16,1 milljarði króna.

Laun og launatengd gjöld námu í heild 11 milljörðum og voru um 5% yfir áætlun en á móti kemur að tekjur voru 3% yfir áætlun og verðbætur lægri en áætlað var vegna lítillar verðbólgu.

Þá lækkaði skuldahlutfall bæjarins úr 185% í 175% á árinu 2014 en það var 242% þegar hæst var árið 2010. Skuldahlutfall A-hluta er nú 148% og er þar með komið undir lögbundið 150% viðmið. Samkvæmt aðlögunaráætlun verður skuldahlutfall samstæðu komið undir 150% viðmið árið 2018.

„Það er ánægjulegt að afkoma bæjarins er í samræmi við þær áætlanir sem lagðar voru fram, skuldir halda áfram að lækka og skuldahlutfall sömuleiðis. Hins vegar er því ekki að neita miklar hækkanir launaliða hafa sín áhrif, sem meðal annars birtist í því að útreikningur á lífeyrisskuldbindingum hækkar um 440 milljónir umfram áætlanir,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri.