Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins 5. mars næstkomandi verður kosið til stjórnar. Árlega er kosið um formann og að þessu sinni er kosið um fimm almenn stjórnarsæti. Rafræn kosning hófst á fimmtudag og fer fram til hádegis þann 4. mars.

Guðrún Hafsteinsdóttir, sitjandi formaður, er ein í framboði til formanns en níu gefa kost á sér til setu í stjórn samtakanna. Þau eru Agnes Ósk Guðjónsdóttir, Ágúst Andrésson, Gestur G. Gestsson, Gunnar Tryggvi Halldórsson, Gylfi Gíslason, Jón Gunnar Jónsson, Katrín Pétursdóttir, Lárus Andri Jónsson og Ragnar Guðmundsson.