Í dag, 3. desember hefur kranavísitalan svokallaða, sem sýnir hve margir kranar hafi verið skoðaðir af vinnueftirlitinu á ári, náð sama fjölda og árið 2007, eða 364.

Á sama tíma hefur fjöldi vinnuslysa í byggingar- og mannvirkjagerð, framkvæmdum opinberra aðila og rafmagns og hitaveitum lækkað frá því sem var þegar umfang framkvæmda var sem mest fyrir hrun.

Þetta kemur fram á vef Vinnueftirlitsins , en þar er þó tekið fram að ekki séu allar tölur um vinnuslys fyrir árið í ár komnar fram.