Landssamband veiðifélaga hefur skrifað Kristjáni Þór Júlíussyni ráðherra bréf þar sem þess er krafist að fram fari stjórnsýsluúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með sjókvíaeldi á laxi.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Þar segir orðrétt:

Í bréfinu er vísað til þess að í fjölmiðlum hefur verið greint frá því að í óveðri að undanförnu hafi búnaður fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax orðið fyrir skemmdum og sjókví  hafi laskast í Tálknafirði með þeim afleiðingum að flothæfni var ekki lengur til staðar.  Einnig hafi komið rifa eða gat á nót í kví fyrirtækisins í Arnarfirði. Þá liggi fyrir að nú 8 dögum  síðar hafi eftirlitsmaður ekki enn verið sendur á staðinn til að taka út mannvirki og búnað fyrirtækisins.  Einnig gerir Landssambandið alvarlegar athugasemdir við að opinberir eftirlitsaðilar birti ekki upplýsingar um málið sem virðist hafa átt að fara leynt.

Landssambandið krefur ráðherra svara um hvernig ráðuneytið ætlar að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin þar sem ljóst sé að eftirlit með starfseminni er í skötulíki.  Þá fer Landssambandið fram á að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið áminni Matvælastofnun og Fiskistofu um að miðla upplýsingum um óhöpp í sjókvíaeldi sem erindi eiga við hagsmunaaðila og almenning, líkt og á sér stað við aðra mengandi stóriðju sem náttúru landsins getur stafað hætta af.