Kristján Geir Gunnarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Odda prentunar og umbúða ehf. Fyrir skömmu óskaði Gunnar Sverrisson, framkvæmdastjóri félagsins, eftir því við stjórn þess að láta af störfum af persónulegum ástæðum segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Féllst stjórnin á það og gerði í kjölfarið samning við Kristján Geir sem nú hefur tekið til starfa. Gunnar mun tímabundið sinna sérstökum verkefnum fyrir félagið, m.a. á sviði fasteigna þess. Kristján Geir gegndi áður starfi sölu- og markaðsstjóra fyrirtækisins, sem fagnar 75 ára afmæli um þessar mundir og stendur á margvíslegan hátt á tímamótum.

Kristján Geir er iðnrekstrarfræðingur með BS gráðu í alþjóða markaðsfræði frá HR og MBA gráðu frá Copenhagen Business School. Áður en Kristján hóf störf hjá Odda var hann markaðsstjóri Nóa Siríus og markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni.

Stjórn Odda færir Gunnari Sverrissyni sérstakar þakkir fyrir vel unnin og ósérhlífin störf fyrir félagið á undanförnum árum og óskar honum alls velfarnaðar í framtíðinni.