Kristján Pétur Sæmundsson hefur tekið við starfi ráðningastjóra hjá TeqHire.com.

Kristján starfaði áður við stjórnenda- og fyrirtækjaráðgjöf hjá Hagvangi, sem verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík.

Áður starfaði hann sem rekstrarstjóri sprotafyrirtækisins Skema. Kristján er með B.Sc. gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

TeqHire.com er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar hugbúnað og þjónustar framsækin fyrirtæki í tæknigeiranum. Félagið er með starfsstöðvar á Íslandi og í Austur-Evrópu auk þess sem unnið er að opnun skrifstofu í Berlín snemma á næsta ári.