Kristrún Heiða Hauksdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytis. Kristrún Heiða er með BA-próf í almennri bókmenntafræði og MA-próf í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands.

Kristrún Heiða starfaði áður sem kynningar- og verkefnastjóri hjá Forlaginu og þar áður hjá Þjóðleikhúsinu.

Hún hefur þegar hafið störf.