Gengið hefur verið frá skipun verðlagsnefndar búvara og er Kristrún M Frostadóttir aðalhagfræðingur viðskiptaráðs er formaður nefndarinnar að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Verðlagsnefndin er skipuð 7 einstaklingum og skulu tveir fulltrúar vera tilnefndir af samtökum launþega, tveir af Bændasamtökum Íslands, tveir af Samtökum afurðastöðva í mjólkurframleiðslu auk þess sem ráðherra landbúnaðarmála skipar formaður nefndarinnar.

Samtök launþega, þ.e. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og stjórn Alþýðusambands Íslands hafa ákveðið að nýta ekki rétt sinn til tilnefningar. Samkvæmt lögum féll það því í hlut velferðarráðherra að tilnefna þessa tvo fulltrúa.

Verðlagsnefnd búvara er þannig skipuð:

  • Kristrún M. Frostadóttir, skipuð af ráðherra
  • Arnar Árnason, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
  • Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
  • Rögnvaldur Ólafsson, tilnefndur af Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði sf.
  • Jóhanna Hreinsdóttir, tilnefnd af Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði sf.
  • Þórólfur Geir Matthíasson, tilnefndur af velferðarráðuneytinu
  • Dóra Sif Tynes, tilnefnd af velferðarráðuneytinu