Kristrún Frostadóttir hefur verið ráðin hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Kristrún tekur við starfinu af Birni Brynjúlfi Björnssyni sem hefur starfað sem hagfræðingur ráðsins síðastliðin þrjú ár. Kristrún mun hefja störf i lok mars. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Viðskiptaráði Íslands.

„Kristrún kemur til Viðskiptaráðs frá bandaríska fjárfestingarbankanum Morgan Stanley. Þar hefur hún starfað sem sérfræðingur i greiningardeild, fyrst í New York og síðan í London. Sérsvið Kristrúnar í London sneri að greiningu á evrópskum netverslunarfyrirtækjum. Í New York sinnti hún greiningarvinnu í tengslum við bandarísk eignastýringar- og orkufyrirtæki.
Áður hefur Kristrún starfað meðal annars sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu og sem hagfræðingur í starfshóp á vegum forsætisráðuneytisins. Auk þess starfaði hún sem hagfræðingur í greiningardeild Arion banka árin 2011-2012,“ segir í fréttinni.

Kristrún er með meistaragráðu í alþjóðafræðum frá Yale-háskóla, með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál, sem og meistaragráðu í hagfræði frá Boston-háskóla. Einnig er Kristrún með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands.