Gengi íslensku krónunnar hefur veikst gagnvart helstu viðskiptamyntum sínum það sem af er viðskiptadegi í morgun, einna mest gagnvart japanska jeninu, eða sem nemur 2,39%.
Breytingarnar eru þannig þegar þetta er skrifað:
- Evran hefur styrkst um 1,44% - kaup: 119,55 - sala: 120,35
- Bandaríkjadalur hefur styrkst um 1,72% - kaup: 110,85 - sala: 111,58
- Breskt pund hefur styrkst um 1,55% - kaup: 138,17 - sala: 139,09
- Japanskt jen hefur styrkst um 2,39% - kaup: 0,9960 - sala: 1,0030
- Svissneskur franki hefur styrkst um 1,65% - kaup: 111,59 - sala: 112,33
- Dönsk króna hefur styrkst um 1,43% - kaup: 12,557 - sala: 12,640
- Sænsk króna hefur styrkst um 1,32% - kaup: 12,557 - sala: 12,640
- Norsk króna hefur styrkst um 1,16% - kaup: 13,017 - sala: 13,103