Stjórn Kviku hefur gert kauptilboð í allt hlutafé Virðingar. Ef af kaupunum verður er stefnt að því að sameina félögin. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kviku.

Samkvæmt tilboðinu nemur kaupverðið 2.560 milljónum króna og verður það greitt með reiðufé. Kaupin eru háð ákveðnum skilyrðum, þar á meðal samþykki hluthafa beggja félaga og samþykkis eftirlitsstofnana. Stjórn Virðingar hefur móttekið kauptilboðið og ákveðið að beina því til hluthafa félagsins.

Kauptilboðið gildir til kl. 16:00 þann 30. júní næstkomandi. Ef samþykki að lágmarki 90% hluthafa Virðingar fæst fyrir þann tíma er stefnt að boðun hluthafafundar í Kviku um miðjan júlí.

Fyrir nokkru síðan var undirritaður samningur um kaup Virðingar á ÖLDU sjóðum hf. Verði tilboði Kviku til hluthafa Virðingar hf. tekið, er sá samningur háður endanlegu samþykki Kviku og hluthafa Öldu.