Stjórn Kviku hefur samþykkt rekstraráætlun bankans fyrir árið 2019. Þar sem fyrirvarar um samþykki hluthafafundar Kviku og eftirlitsaðila höfðu ekki verið uppfylltir við gerð áætlunarinnar tekur hún ekki tillit til kaupa á Gamma Capital Management hf.

Áætlunin gerir ráð fyrir að hagnaður fyrir skatta verði 1.990 milljónir króna. og arðsemi eiginfjár fyrir skatta því 15,3%. Í níu mánaða uppgjöri Kviku kom fram að væntur hagnaður þessa árs yrði 1,93 milljarðar króna.

Heildartekjur ársins 2019 eru áætlaðar 6.450 milljónir króna., þar af er áætlað að 60% verði þóknanatekjur, 31% vaxtatekjur og 9% fjárfestingatekjur.

Áætlaðar þóknanatekjur skiptast á milli sviða með eftirfarandi hætti; 51% eignastýring, 16% markaðsviðskipti, 15% fyrirtækjasvið, 13% fyrirtækjaráðgjöf og 5% annað.

Áætlað er að heildareignir verði 108 milljarðar króna í lok árs 2019.

Afkoma bankans getur vikið töluvert frá áætlun, m.a. vegna markaðsaðstæðna. Stjórn Kviku hefur samþykkt að viðmið um upplýsingagjöf til markaðsaðila vegna slíkra frávika skuli vera ef bankinn telur að afkoma ársins fyrir skatta, fyrir bankann í heild, víki meira en 10% frá útgefinni áætlun.

Skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland

Stjórn bankans hefur tekið ákvörðun um að stefna á skráningu á Aðalmarkað Nasdaq Iceland fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2019. Ekki er gert ráð fyrir hlutafjárútboði samhliða skráningunni.