Helgi Tómasson prófessor í tölfræði skrifaði aðsenda grein í Fréttablaðið um það sem hann kallar vandamál í oftúlkunum á tölfræðiniðurstöðum og afbakanir á þeim.

Vísar hann í því samhengi meðal annars til umræðu um kynbundinn launamun en eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um , hefur hann farið minnkandi á síðustu árum.

Ófullkomin gögn og einfaldir meðaltalsútreikningar

„Í krassandi forsíðuefni þarf helst að vera fórnarlamb og mætti stundum ætla að meirihluti mannkyns sé í því hlutverki.

Dæmi um þetta eru stöðugar vitnanir í hugtakið kynbundinn launamun þar sem gefið er í skyn að gervallt kvenkynið sé fórnarlamb mismununar af völdum karla," segir Helgi.

„Ófullkomin gögn og einfaldir meðaltalsútreikningar leyfa ekki svo hrikalega ályktun.

Útilokar jafnumfangsmikla mismunun

Útilokað er að slík óskynsamleg hegðun og umfangsmikil mismunun geti átt sér stað, þótt einungis sé litið til þess kostnaðar sem af henni hlytist.

Gary Becker, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, hefur fjallað um nauðsynleg skilyrði fyrir tilvist varanlegrar mismununar sem eru að kostnaður þeirra sem mismunun stunda sé lítill og að fórnarlömbin finni rækilega fyrir því."

Segir Helgi að hvorugt skilyrðið sé fyrir hendi varðandi  launamismunun milli kynjanna.

Skýra launamyndun með einföldum breytum

„Tölfræðiályktanir í könnunum um kynbundinn launamun byggja á því að unnt sé að skýra launamyndun með mjög einföldum breytum á borð við starfsheiti og starfsaldur," segir Helgi.
„Því er síðan haldið fram að það sem ekki tekst að skýra með þessum einföldu breytistærðum sé kynjamismunun.

Það sem öllu máli skiptir er að í slíkum útreikningum liggja ekki fyrir neinar upplýsingar um ástæður þess að starfsfólk með sama starfsheiti og starfsaldur í mismunandi fyrirtækjum getur verið með mishá laun af fullkomlega eðlilegum ástæðum.

Oftúlkun í gagnagreiningu alþjóðleg

Umræða um kynbundinn launamun er alþjóðleg og byggir á oftúlkunum í gagnagreiningu.

Munur á hegðun kynja er flóknari en svo að lýsa megi henni með einni tölu. Tölfræðingar skrifa ekki upp á að kynbundinn launamunur sé vitrænt hugtak á grundvelli fyrirliggjandi staðreynda."