Kynnisferðir hafa tekið ákvörðun um að segja upp 59 starfsmönnum fyrirtækisins. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi síðdegis. Rúmlega 400 manns hafa starfað hjá Kynnisferðum en fyrirtækið hefur verið starfrækt frá árinu 1968.

,,Þetta er mjög erfið ákvörðun en hún er tekin vegna þess að rekstrarumhverfi hefur breyst mikið að undanförnu. Það er fyrirséð að rekstrartekjur fyrirtækisins munu minnka á næstu mánuðum. Aðalástæðan er sú að WOW Air er hætt rekstri sem þýðir að færri ferðamenn koma til landsins. Þá munum við ekki sjá um áhafnaakstur Icelandair sem hefur verið umfangsmikil starfsemi hjá okkur. Við höfum sinnt þessum akstri í 40 ár en í kjölfar útboðs Icelandair fer þetta verkefni nú annað," segir Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða.

,,Þetta er að sjálfsögðu gríðarlegt áfall fyrir þá starfsmenn sem missa vinnuna. Við munum standa að þessu eins vel og mögulegt er en það breytir því ekki að þetta er mjög erfitt," segir Björn ennfremur.