Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,57% niður í 1.598,54 stig í 1,9 milljarða viðskiptum dagsins. Aðalvísitala Skuldabréfa hækkaði hins vegar um 0,01% í 2,3 milljarða viðskiptum og stendur hún nú í 1.363,44 stigum.

Mest lækkun var ég gengi bréfa Icelandair Group, eða um 2,08% í 315 milljón króna viðskiptum og eru bréf félagsins nú komin niður í 14,12 krónur. Þetta er nokkuð minni lækkun en stefndi stefndi í fyrr í dag eins og Viðskiptablaðið greindi frá .

Mestu viðskiptin voru með bréf Nýherja, eða fyrir 492 milljónir króna, en gengi þeirra hækkaði um 0,38% sem jafnframt var mesta hækkunin í kauphöllinni í dag. Fór gengi bréfanna upp í 26,50 krónur.