Alþýðusamband Íslands hyggst lána Flugfreyjufélagi Íslands um það bil 100 milljónir króna til að aðstoða fyrrum starfsfólk Wow air. Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands segir að aðstoðin sé ómetanleg. Vonir standa til að greiðslur berist í vikunni. Við fall Wow air missti flugfreyjufélagið meira en þriðjung félagsmanna sinna. RÚV greinir frá þessu.

Um það bil 1100 manns misstu vinnuna þegar Wow air sigldi í gjaldþrot síðastliðinn fimmtudag. Úr þessum hópi voru ríflega 400 flugfreyjur og flugþjónar.

„Þetta er rosalegt högg fyrir Flugfreyjufélagið. Um þriðjungur félagsmanna þeirra er núna að missa vinnuna, launalaus um mánaðamótin," hefur RÚV eftir Drífu Snædal, forseta ASÍ. „Þannig að það var alveg ljóst að Flugfreyjufélagið mundi ekki standa undir því að aðstoða þau. Eins og VR hefur gert, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Rafiðnaðarsambandið," er jafnframt haft eftir Drífu.

Í gær  náðu aðilarnir svo samkomulagi um að ASÍ veiti félaginu um 100 milljón króna lán, en ASÍ mun síðan gera kröfu í þrotabú Wow air.

„Það er mjög erfitt að horfa framan í stóran hluta félagsmanna með kökkinn í hálsinum og sorgmætt yfir því að félagið sé orðið gjaldþrota og líka yfir því að vera búin að missa þessa skemmtilegu vinnu," sagði Berglind í samtali við RÚV.

Þeir flugliðar sem stunduðu fullt nám samhliða vinnu, eiga hvorki rétt á atvinnuleysisbótum né námslánum. „Þetta virðast vera einhverjir tugir aðila sem falla þarna á milli skips og bryggju. Sem ekkert er hægt að segja til um hver staðan verður, þar sem það er ekkert í kerfinu sem grípur þau. Sem er grafalvarlegt," sagði Berglind.

Til að fá greitt þurfa félagsmenn flugfreyjufélagsins að skrifa undir skjal þess efnis að þeir framselji kröfur sínar í þrotabú WOW air. ASÍ gerir sér vonir um að greiðslurnar geti borist inn á reikning félagsmanna í vikunni. Að sögn Berglindar undirstrikar þetta mikilvægi samstarfs stéttarfélaga í landinu.