Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að byggja húsnæði fyrir starfsemi bankans við Austurhöfn í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Landsbankinn hefur skoðað ýmsa kosti í húsnæðismálum í samvinnu við ráðgjafarfyrirtækið KPMG og Mannvit verkfræðistofu og var niðurstaða greiningar KPMG sú að Austurhöfn væri ákjósanlegasti kosturinn.

Bankinn mun nýta um 10.000 fermetra í nýju húsi, um 60% af flatarmáli hússins, en selja eða leigja frá sér um 6.500 fermetra sem munu nýtast fyrir verslun og aðra þjónustu.

Bankinn mun fyrst og fremst nýta efri hæðir hússins þar sem fermetraverð er metið sambærilegt og á skrifstofuhúsnæði á öðrum góðum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Verðmætustu hlutar hússins á neðri hæðum verða að stærstum hluta seldir og umframrými á efri hæðum leigt út.

Fagnar lausninni

Þeir þættir sem horft var til í mati KPMG á mismunandi staðarvalkostum voru hagkvæmni, verðgildi hússins til framtíðar, samgöngur, staðsetning, skipulagsmál, sveigjanleiki húsnæðis og þjónusta og mannlíf í nágrenninu.

Fjölbreytt starfsemi bankans gerir það að verkum að bankinn telur þörf á að vera með starfsemi sína miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Meðal kosta sem voru sérstaklega skoðaðir voru lóðir í grennd við Borgartún, Kringlu og Smáralind. Niðurstaðan var að Austurhöfn er ákjósanlegasti kosturinn þegar tekið er tillit til allra ofangreindra atriða.

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður Bankaráðs segir í tilkynningunni:

„Það er ánægjulegt að lausn á húsnæðisvanda bankans sé í sjónmáli. Starfsemi bankans í miðborg Reykjavíkur er í 13 húsum, að langstærstum hluta í leiguhúsnæði, og er húsnæðið bæði óhagkvæmt og óhentugt. Þetta er eitt af þeim skrefum sem brýnt er að taka til að bæta reksturinn og gera Landsbankann betur í stakk búinn til að þróast í síbreytilegu umhverfi. Við munum vanda til verka við úrlausn þessa máls, enda mikilvægt að vel takist til. Við viljum gæta sérstaklega að því að hús bankans við Austurstræti 11, sem hefur menningarlegt og sögulegt gildi, fái áfram að njóta sín.“

Fermetrum fækkað

Með flutningi í nýtt húsnæði mun starfsemi sem í dag fer fram á um 21.000 fermetrum rúmast á um 10.000 fermetrum. Þetta er umtalsvert minna húsnæði en áður var talið að þyrfti undir starfsemina.

Markmiðið með flutningum í nýtt hús er að ná fram hagræðingu, auka skilvirkni og mæta kröfum um breytt vinnulag í fjármálaþjónustu. Í því felst meðal annars að vinnuaðstaða í húsinu verður verkefnamiðuð og starfsfólk geti fært sig til eftir því sem verkefni krefjast.

Spara sér 500 milljónir

Árlegur sparnaður vegna flutninga á starfsemi bankans í nýtt húsnæði er metinn vera um 500 milljónir króna og því var ákvörðun um nýjar höfuðstöðvar aðkallandi.

Áætlaður kostnaður við að reisa 16.500 fermetra hús er um 9 milljarðar króna, að lóðarverði meðtöldu. Að teknu tilliti til þess að bankinn mun selja og/eða leigja 6.500 fermetra er gert ráð fyrir að kostnaður bankans við þann hluta hússins sem hann mun nýta verði um 5,5 milljarðar króna. Á móti kæmi söluverðmæti þeirra fasteigna sem bankinn getur selt við flutningana.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segir hraða tækniþróun og örar breytingar einnig krefjast nýrra vinnubragða.

„Hröð tækniþróun og örar breytingar á fjármálamarkaði krefjast nýrra vinnubragða og mun nánari samvinnu og sveigjanleika innan bankans. Það er mikilvægt að vera í hentugu skrifstofuhúsnæði sem gerir slíka samvinnu mögulega þannig að við getum áfram veitt viðskiptavinum okkar fyrirmyndarþjónustu. Með því að selja eða leigja um 40% hússins við Austurhöfn, þar á meðal þá hluta sem eru metnir verðmætastir, nýtur bankinn þess að eiga lóð á góðum stað. Landsbankinn mun byggja hagkvæmt hús sem mun falla vel að umhverfi sínu. Þessi ákvörðun bankaráðs er fyrsta skrefið og nú hefst undirbúningsvinnan fyrir alvöru.“