Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 285 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2015, samanborið við 75 milljóna króna hagnað á sama tíma á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu .

Hreinar rekstrartekjur námu 762 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2015, en 493 milljónum króna á sama tímabili árið áður. Eigið fé Landsbréfa í lok tímabilsins nam 2.117 milljónum króna og eiginfjárhlutfall, reiknað samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 65,39% en það má ekki fara undir 8%.

Í tilkynningunni segir að umsvif félagsins tengd sérhæfðum fjárfestingum hafi sem fyrr verið umtalsverð. Sérstaklega beri að nefna stofnun Brunns vaxtarsjóðs, sem er fjögurra milljarða króna nýsköpunarsjóður, en hann tók til starfa í upphafi árs. Félag rekur einnig Horn II slhf., sem fjárfestir í öllum geirum íslensks atvinnulífs og Landsbréf Icelandic Tourism Fund I slhf. sem sérhæfir sig í fjárfestingum í afþreyingartengdri ferðaþjónustu.

Í lok júní önnuðust Landsbréf rekstur 30 sjóða og félaga um sameiginlega fjárfestingu og eignir í stýringu voru um 104 milljarðar króna. Um 12 þúsund einstaklingar og lögaðilar eiga fjármuni í sjóðum eða í stýringu hjá Landsbréfum.

„Rekstur Landsbréfa hefur gengið mjög vel það sem af er ári og hafa sjóðir félagsins almennt skilað góðri ávöxtun. Sjóðaframboð Landsbréfa er fjölbreytt og hæfir þörfum ólíkra fjárfesta. Líklegt má telja að næstu misseri verði hagfelld á mörkuðum og munu Landsbréf áfram leggja metnað sinn í að stýra þeim fjármunum sem félaginu er treyst fyrir á öruggan og markvissan hátt í þágu sjóðsfélaga,“ segir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa.