Á fyrsta ársfjórðungi ársins fjölgaði íbúum landsins um 1.730 manns, eða um 0,5%, og bjuggu alls 358.780 manns á Íslandi um mánaðamótin mars og apríl að því er Hagstofan greinir frá. Nokkuð fleiri karlar búa nú á landinu en konur, eða rétt tæplega 184 þúsund karlar á móti 175 þúsund konur. Eru karlarnir 9.060 umfram konurnar.

Af heildaríbúum landsins bjuggu rétt tæplega 230 þúsund á höfuðborgarsvæðinu en 130 þúsund utan þess. Alls fæddust 1.030 börn á 1. ársfjórðungi, en 560 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.260 einstaklingar til landsins umfram brottflutta.

Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 130 umfram aðflutta. Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.390 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Flestir Íslendingr komu frá Danmörku

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 160 manns á 1. ársfjórðungi. Alls fluttust 600 íslenskir ríkisborgarar frá landinu og af þeim fluttust 310 til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Af þeim 940 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 330 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku, eða 170, en 70 komu frá Noregi og 80 frá Svíþjóð, samtals 320 manns af 470. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 650 til landsins af alls 2.330 erlendum innflytjendum.

Litháen kom næst, en þaðan fluttust 270 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fyrsta ársfjórðungs bjuggu 45.670 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 12,7% af heildarmannfjölda.