Landsnet hagnast um 36,3 milljónir dollara, um 4,3 milljarða króna á síðasta ári og batnaði afkoma félagsins milljarð króna milli ára en hagnaður ársins 2017, nam 28 milljónum dollara, um 3,3 milljörðum króna. Aukinn hagnaður skýrist að hluta af hagstæðum gengismun sem nam 3,3 milljónum dollara. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 7,1 milljarði króna miðað við 6,9 milljarða króna árið áður.

Handbært fé nam 39 milljónum dollara í árslok og handbært fé frá rekstrin nam 70 milljónum dollara. Eigið fé Landsnets nam 370 milljónum dollara, eignir 846 milljónum dollara og skuldir 476 milljónum dollara.

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets, segir að rekstur ársins var samkvæmt áætlun. „Ársreikningurinn endurspeglar þær áherslur sem fyrirtækið hefur sett sér en undanfarin ár hefur markviss vinna átt sér stað í að auka stöðugleika í rekstrarumhverfi félagsins ásamt hagræðingu í ferlum og verklagi hjá félaginu. Árangur hagræðingarinnar mun koma enn betur í ljós á næstu árum. Eftirspurn eftir orku er sífellt að aukast og á síðasta ári var meira magn orku flutt eftir kerfinu en nokkru sinni áður. Heildarflutningur var um 19 terawattstundir, sem er aukning um rúm 3% á milli ára. Framundan er gert ráð fyrir enn frekari aukningu á orkuflutningi og einnig stefnir fyrirtækið í viðamiklar framkvæmdir á árinu til að mæta eftirspurninni. Áætlað er að framkvæma fyrir um 90 milljónir USD á árinu 2019.Það er áskorun að takast á við stór og viðamikil verkefni án þess að koma þurfi til hækkunar gjaldskrár og geta um leið uppfyllt vaxandi kröfur um öryggi og framkvæmdahraða. Auk áskorana Landsnets er mikilvægt að stjórnvöld hugi að einföldun regluverks skipulags og leyfisveitinga framkvæmda,“ segir Guðmundur.

Laun Guðmundar hækkuðu um 30% milli ára og námu árslaun hans með hlunnindum 29,9 milljónum króna í fyrra en 22,9 milljónum króna árið 2017. Alls hækkaði launakostnaður Landsnets um 6,7% í krónum í fyrra en stöðuglidi voru að meðaltali 126 á árinu. Landsnet er í eigu Landsvirkjunar, Rarik, Orkuveitu Reykjavíkur og Orkubús Vestfjarða.